Tuesday 02. March 2010, 00:20

Bolir til styrktar Barnaspítala Hringsins !

 

 

Mótosport klúbburinn Team Morgan vill láta gott af sér leiða á þessum erfiðu tímum, og er hugmyndin sú að búa til flotta boli sem ættu að verða um 200 stk. Þeir verða svo seldir á heimasíðu klúbbsins www.morgan.is og hjólaverslunum Nítró/N1 og Púkinn.com.

 

Mun allur ágóði af sölu bolana renna óskertur til barnaspítla Hringsins, en ekki þó í peningum, heldur keyptum gjöfum með ágóðanum. Ágóðin sem safnast með seldum bolum verður því notaður til að kaupa afþreyingjar efni fyrir krakkana og foreldra sem í hringnum þurfa að dvelja, s.s Flatskjái, leikjatölvur og leiki, dvdspilara ,myndefni og fleira !

 

Afhverju styrkja barnaspítala Hringsins spyrðu þig ?

 

Jú við höfum persónulega þurft að horfa á langveik börn og aðstandendur þeirra þurfa dvelja í hringnum í margar vikur jafnvel mánuði vegna erfiða veikinda. Og við þekkjum hversu erfið þessi dvöl er fyrir bæði krakkana og foreldra. Tíminn líður hægt á erfiðum tímum og krökkum og aðstandendum getur leiðst.

 

Nú er Ríkið er búið að skera niður fjárlög til spítalans um mörg hundruð milljónir og því verður ekki mikið gert í þessum málum á næstunni.

 

Þess vegna viljum við ásamt góðum kostendum gera eitthvað gott, því betra er að gefa en þiggja, það vita allir !. Við leitum því til þín ágæti kostandi með von um fjárstyrk.

 

Hugmyndin er að safna kostendum aftan á bakið og ermum á bolum sem hafa verið hannaðir af Team Morgan og Hexa/N1. En að gera svona bolir kostar peninga, peninga sem við eigum ekki í Team Morgan. Því væri gaman að allir myndu taka sig saman og kaupa auglýsingar aftan á þessa boli.

 

Því fleiri því betri !, en hafa skal í huga að ef vel tekst til að ná samkomulagi við byrgjana sem selja bolina og aðilana sem munu sjá um merkingar. Þá munu umfram peningar sem koma frá auglýsinga sölu renna í afþreyingar sjóðinn.........

 

Hvað græðir þú á þessu ágæti kostandi ?

 

Auglýsingu á flottum bolum í 200 + stk.

Gott málefni og umtal !

 

Sjá glaða krakka á erfiðum tímum, og bros á aðstandendum þeirra !

 

 

Við treystum á þig :)

Team morgan

 
Binni Morgan sagði:
Skora á fjársterka aðila að taka þátt í þessu með okkur !!!
Sendið mér línu á binni [hja] morgan.is
Tuesday 02. March 2010, 00:21
Gatli 280# sagði:
Þetta er snilld hjá ykkur Morgan strákunum styð ykkur alla leið í þessu og kaupi pottþétt 1 eða 2 boli!!!
Tuesday 02. March 2010, 00:38
óskar sagði:
hvað er netfangið hjá þér
Tuesday 02. March 2010, 01:02
Axel sagði:
Get því miður ekki sponsað öðruvísi en í bolakaupum og kaupi þegar þeir verða tilbúnir. Frábært framtak annars
Tuesday 02. March 2010, 01:18
Binni Morgan sagði:
Já vonandi tekst þetta prógram hjá okkur....ég er að vonast eftir því að bolurinn þurfi ekki að kosta meira en 2500-2900 kr.

Óskar Annars er mailið hjá mér binni [hja] morgan.is
Tuesday 02. March 2010, 01:48
Jón Bjarni #18 sagði:
afhverju geriru ekki bara @ merki?

langar afskaplega mikið að vita það hehe

en annars sniðug hugmynd að kaupa tölvur og leiki :)
Tuesday 02. March 2010, 03:03
Binni Morgan sagði:
Af því það eru spam bottar á ferð um internetið sem finna og pikka upp email. Og þegar það gerist þá fyllist emailið hjá þér af rusl pósti og viðbjóði !

Ef þú brýtur upp emailið eins og ég er að gera, þá eru minni líkur á því að það gerist !
Tuesday 02. March 2010, 11:36
Þokkalegur sagði:
Ég stið þetta frammtak hjá ykkur framm í fulla hnefana. þar sem ég á sjálfur 4 börn þá væri þetta gott frammtak til að geta linað og stytt erfiða tíma. En þar sem ég er svo heppin að eiga ekki langveikt barn enn sem komið er þá stið ég ykkur og ætla að kaupa bol eða boli.

Kveðja frá Dk
Tuesday 02. March 2010, 12:44
Brói sagði:
Gott framtak hjá ykkur ég panta bol þegar þetta er klárt
Tuesday 02. March 2010, 13:39
Aron icemoto sagði:
Frábært framtak Binni, ábyggilega hægt að fá flotta styrktaraðila á þetta. Berjumst í þessu.
Tuesday 02. March 2010, 16:25
Frábært framtak..!
líst MJÖG vel á þetta..
Tuesday 02. March 2010, 22:44
Gamli sagði:
Hérna, fer þetta í allar verslanir Nítró/N1 á landinu eða bara á Höfuðborgarsvæðinu ?
Tuesday 02. March 2010, 22:58
Arnar sagði:
þetta verður að koma útá land. verð að fá svona bol ;)
Wednesday 03. March 2010, 02:30
Halli#29 sagði:
ég lá á spítala um daginn og ég er allveg á því að það þurfi að endurnýja playstasion tölvurnar og leikinna
ég mun kaupa bol :)
Wednesday 03. March 2010, 12:02
Binni Morgan sagði:
Vá !! ég þakka rosalega góð viðbrögð frá auglýsendum. Pósthólfið mitt bara fullt af góðum straumum :)

ég að vísu þurfti að fara á sjóinn í gær, en ég er þó búin að svara ykkur öllum :)

Wednesday 03. March 2010, 14:30
guðmundur þórir sagði:
flott framtak
Wednesday 03. March 2010, 17:08
Benni sagði:
ég mun kaupa bol af ykkur, litla frænka mín er með hvítblæði og liggur á spítalanum.
Wednesday 03. March 2010, 20:06
Ásta VS sagði:
Ferlega ánægð með ykkur! :)
Wednesday 03. March 2010, 21:44
Peta sagði:
Hæ, koma þessir bolir ekki örugglega út á land og verða þeir til í barnastærðum ???
Friday 05. March 2010, 10:29
Binni Morgan sagði:
Jú ég held hreinlega að við verðum að búa til einhverjar barnastærðir. Þar sem það er búið að spyra mig talsvert um það. Svo við skulum reikna með því :)

Annars er ekki allveg komið á hvort við dúndrum þeim út á land.....en það verður allavegana hægt að kaupa þá hér á vefnum.
Friday 05. March 2010, 12:40
Binni Morgan sagði:
Það gengur vonum framar að safna sponsum á bolina, ég vil þakka þeim sem hafa gefið mér línu á meilið mitt, en þó vantar nokkrar í viðbót svo allt gangi upp..... !
Tuesday 09. March 2010, 14:54
Nafn

Netfang

Skoðun

Sláðu inn tölustafinn þrír (til að koma í veg fyrir spamm)



Til baka