Saturday 06. March 2010, 20:56
Páll Ásgeir Ásgeirsson bloggar um slóðavini á blogg síðu sinni á eyjan.is...þetta er ekki fyrsta bloggið hans um mótorhjólamenn og trúlega ekki það síðasta. Hann fær helviti góðar athugasemdir beint í andlitið :)
"Forsvarsmenn Slóðavina vörðu af hugprýði rétt sinn til þess að aka eftir kindagötum og fornum þjóðleiðum og kvörtuðu undan skorti á merkingum, skorti á upplýsingum og gölluðum skipulagslögum.
Vanþekking þeirra á lögum og reglum um þessi efni var þó nokkuð neyðarlega afhjúpuð þegar forstjóri Fornleifaverndar dr. Kristín Huld Sigurðardóttir, fékk orðið úr salnum og upplýsti fundarmenn um lög nr. 107 frá 2001 sem vernda fornar þjóðleiðir fyrir ágangi m.a. mótorhjólamanna og upplýsti þá í leiðinni um áhugaverð atriði eins og nafn stofnunarinnar, heimilisfang og vísaði á heimasíðu Fornleifaverndar. Í framhaldinu bauð hún mótorhjólamönnum til fundar og samræðna."
Kíkið á þetta blogg " hér "