Sunday 14. March 2010, 11:17

Mig langaði bara að minn á klúbbinn minn fyrir norðan. Flestir klúbbar eru með 4-6000 kr árgjald ! En í Vélhjólaklúbb Skagafjarðar er árgjaldið aðeins 3000 kr og ársmiðinn í brautina aðeins 7000 kr. Menn þurfa ekki endilega að skrá sig í Vík til að keppa, eins og tld Klaustri. Mönnum er frjálst að veljaa sér klúbb. Aðstaðan á Sauðárkrók er með öllu til fyrirmyndar, þar er búið að koma upp flottu húsi, lítil ýta sem sér um að slétta og laga brautina eftir þörfum. Og svo höfum við nátturulega flottustu brautina.

Klúbburinn er á facebook, sjá " hér "

Styrkið litlu félögin út á landi, þannig stækkum við sportið !

 
Axel sagði:
Sammála þessu, menn þurfa ekki allir að borga í VÍK, sérstaklega ef þeir nota brautina ekki mikið. Motocrossfélag Árborgar er líka með 3000 kall árgjald
Monday 15. March 2010, 20:54
aron66.is sagði:
og VIR lika!
Monday 15. March 2010, 23:46
kalli sagði:
eru slóðavinir gilt í þessu félagatali, mér finnst peningunum mínum illa varið í Vík enda finnst mér persónulega þeir einblína bara á motocross en þar sem ég er endurobúðingur langar mig að peningarnir nýtist í þeim geira en ekki motocross.
Tuesday 16. March 2010, 01:02
Binni Morgan sagði:
Vík er nú með besta löglega enduro svæðið á landinu....svo það er ekki allveg rétt hjá þér Kalli !
Tuesday 16. March 2010, 02:10
Torrent sagði:
2010 AMA Supercross Rd 10 Toronto

http://www.sofinn.net/details.php?id=737
Tuesday 16. March 2010, 03:12
Óli Gísla sagði:
Að vera meðlimur í VÍK eða ekki.
Hvað færðu fyrir þessar 4.000. kr.
Það er húsnæði á svæðinu með aðstöðu til fataskipta eða til að fá sé kaffibolla. Það er þvotta aðstaða fyrir hjólin. Það eru klósett í húsinu. Þetta allt færðu afnot af fyrir litlar 4000 kr. Því miður er ekki ókeypis að hlalda þessari aðstöðu úti.
Að borga einungis 4000 kr og geta nýtt sér þessa aðstöðu er, eða ætti, að vera sjálfsagt. Það er ekki rukkað fyrir afnot af enduroslóðunum og þeir vinnudagar sem voðu boðaðir sl sumar, í enduroslóðunum, voru vægast sagt mjög illa sóttir af þeim sem finnst sjálfsagt að nýta sér slóðana og telja að þeir eigi að vera í 100% lagi.
Svo er að sjálfsögðu allt annað mál hvenar eru enuroslóða í lagi og hvenar ekki. Að mínu áliti á enduro að vera með hinum ýmsu hindrunum en ekki að vera eins og að keyra á beinum, breiðum, holulausum og steinalausum vegi.
Tuesday 16. March 2010, 14:33
kalli sagði:
Get nú ekki sagt að VIK sé með stræsta endurósvæði landsins því Ísland er eitt stórt endurosvæði ef þú ert á hjóli með hvítu númeri en hvað um það, það sem ég á við að ég hef borgað í VIK og persónulega finnst mér eins og síðasta sumar að megnið af slóðakerfinu var ókeyrandi eða illa keyrandi því viðhaldið var lítið sem ekki neitt. ég hef sjálfur mætt og unnið á vinnudögum og skil vel að þetta kosti allt og ég er alls ekki að fara fram eitthvað magnað malbikað slóðakerfi heldur að mál sem snúa að enduro og slóðaakstri séu hærra skrifuð hjá VIK en þau eru í dag. Sérber tryggingarmál, ekki veit ég til þess að félagið sé að vinna í því eða tala við tryggingarfélögin og skýra út fyrir þeim að 99% endurohjóla á hvítum númerum eru ekki notuð í umferðinni og því afar lítil hætta á að þau valdi öðrum tjóni en samt er maður að borga næstum það sama og af racer hjóli. Skilst að Slóðavinir séu eitthvað að vinna í þessu og því spurði ég hvort þeir væru gildir sem félag í þessu MSÍ kerfi.
Tuesday 16. March 2010, 16:10
Maggi sagði:
ég get nýtt mér þetta allt þó að ég ekki í vík
Tuesday 16. March 2010, 16:43
Óli Gísla sagði:
Og er það eðlilegt?
Tuesday 16. March 2010, 16:47
Sveppagreifinn sagði:
Að sjálfsögðu á að styðja klúbbana út á landi og við viljum að hægt sé að viðhalda starfsemi klúbba og brauta út á landi. En mér finnst það samt alltaf mjög broslegt þegar að menn grenja yfir 4.000 krónum í árgjald þegar eitt hjól kostar í dag um 1,5 m.kr. eða hjálmur er á 30 þ.kr., skór á 50-60 þ.kr. Árgjaldið í þessa klúbba eru fjórir hamborgarar og er í raun brandari miðað við allt sem verið er að halda utan. Sérstaklega hjá VÍK sem er með eitt stærsta athafnasvæði sem klúbbur er með. Veit ekki betur en það sé frítt á enduroslóðana í VÍK hvort sem þú ert í félagi eða ekki.

Allir röfla og vilja allt en vilja samt ekki borga skítinn 3-4.000 kr. við að halda starfsemi þessara klúbba gangandi. Þetta á við alla klúbba en ekki bara VÍK. Persónulega finnst mér það ekki tiltökumál að vera í 2 klúbbum þar sem ég lít á það sem stuðning við viðkomandi félag.
Wednesday 17. March 2010, 00:27
Grelli sagði:
endilega skoðið Face síðuna hjá vélhjólaklúbbnum fyrir norðan þar eru myndir af svæðinu sem er bæði motocross brautini og svo ísaksturssvæðinu og er klúbburinn með hús á báðum stöðunum og það er sko alltaf heitt á könnuni í sveitini ;)
face síðan :)
http://www.facebook.com/#!/group.php?gid=79689055901&ref=ts
Wednesday 17. March 2010, 11:55
Guðni sagði:
Kalli minn þú þarft einfaldlega að læra undirstöðuatriðin
í akstri á endurohjóli aftur ef þú kvartar yfir slóðonum í bolöldu, 12 ára sonur minn getur keyrt þá alla á 85cc hjóli og þykir ekkert skemmtilegra. Ps það kostar 1000 í endurobrautina í Þorlákshöfn og 4000 krónurnar þínar fara öruglega ekki í motocrossbrautina heldur í kaffið rafmagn´fyrir háþrístidælur og klósettpappír sem þú notar þarna uppfrá þegar þú þrífur nærbuxurnar þínar eftir hring í barnabrautinni ástar kv. þinn vinur Guðni
Wednesday 17. March 2010, 23:14
kalli sagði:
æi æi guðni minn, leitt þegar þroskinn er ekki meiri en þetta.

hef aldrei drukkið kaffi eða notað klósettið í Bolaöldu þó ég hef hjólað í endurobrautinn og verið meðlimur í VIK.

ef mig langar að keyra í grjóti þá fer ég bara í trial en ekki þessa grjótslóða sem eru þarna í Bolaöldu.
Slóðarnir voru skemmtilegir til að byrja með en undanfarin 2 ár hefur þeim ekki verið sinnt neitt og þar sem félagið Slóðavinir er komið og hugsar meira um enduro en motocross þá var spurningin einfaldlega sú hvort það væri tekið gilt að vera meðlimur hjá þeim til að keppa á Klaustri og keppnum á vegum MSÍ.

Alltaf samt gaman hvað menn eru fljótir að færa umræðuna alltaf í drullupollinn en geta ekki virt skoðanir annara.
Thursday 18. March 2010, 00:14
Binni Morgan sagði:
Ok ef við færum okkur upp úr drullupollinum og höldum okkur á mottunni !

Kalli, hvað viltu að VÍK geri, komdu með hugmyndir sem þeir geta þá lagt fyrir á fundum.
Thursday 18. March 2010, 00:55
Sveppagreifinn sagði:
Með fullri virðingu fyrir starfi slóðavina, að þá eru þeir einfaldlega ekki með neitt sér athafnasvæði fyrir utan hálendi Íslands. Þetta er eins og að bera saman epli og appelsínu. Slóðavinir er alveg eðal samtök en félagið stendur ekki að keppnishaldi í enduro eða stendur í slíku. Þannig að þeir hafa og líklegast sjá engan hag í því að vera félagi innan MSÍ. Slóðavinir hafa verið að vinna með hinum og þessum félögum, og er það vel, en meðal annars með því að nota sér aðstöðu VÍK, bæði brautir og aðstöðu.
Thursday 18. March 2010, 13:47
kalli sagði:
Binni Morgan það sem ég væri persónulega til í að sjá á endurosvæðinu hjá VIK er til dæmis dekkjaþraut, svona eins og vinnuvéladekk, drumbafjall eða hvað maður getur kallað það, þar sem símastaurar mynda svona hindrun svo væri gaman að hafa vegasalt og svona ýmislegt sem maður sér í Redbull keppninni í Rúmeníu.
Svo mætti alveg loka slóðum þegar þeir eru eiginlega alveg orðnir ókeyrandi en þá erum við komnir í annað enda sumir sem elska slíða slóða og þá er verið að níðast á þeim.
Annað sem ég vill koma á framfæri er að VIK er að vinna MJÖG gott starf en að mínu mati hafa þeir einbeitt sér mjög mikið að motocross sem er vel en gleymt enduroinu svolítið.
Annað sem ég vill segja og er mín persónulega skoðun er að við gætum náð miklu fyrr árangri í enduro á heimsvísu en í motocross en það er bara svona mín tilfinning.
Thursday 18. March 2010, 19:46
Sveppagreifinn sagði:
Sæll Kalli

Á síðasta aðalfundi VÍK var samþykkt að setja upp Trial/endurocross æfingarsvæði og er það inn í framtíðarskipulagi félagsins á að hefja framkvæmdir við það í sumar. Einnig á að reyna að setja upp freestylesvæði upp í Bolaöldu en þar sem það kallar á rampa o.fl. að þá er tímasetning á því ekki komin. Á heimasíðu VÍK kemur fram teikning af framtíðarskipulagi svæðsins sem vonað er að verði að fullu tekið gildi 2015.

Ég skil alveg þitt sjónarmið Kalli, en við megum samt ekki gleyma að öll þessi félög og þar á meðal VÍK hafa ekki haft svæðin lengi til afnota og eru ekki nema örfá ár síðan að þetta var einn stór drullupollur þarna upp frá. KKA og klúbburinn á Sauðárkróki hafa gert góða hluti, og fleiri sem ég nefni ekki hér. En allir þessir klúbbar væru búnir að loka ef ekki væri fyrir ósérhlífni örfárra manna. Eins og t.d. MotoMos sem er rekið af mikilli hugsjón af örfáum en harðduglegum mönnum. Þess vegna þarf að styrkja þessa klúbba með öllum mögulegum ráðum svo þeir hafi efni á að halda athafnasvæðum sínum við. Þetta er gífurlegt flæmi sem margir af þessum klúbbum þurfa að sinna og í mörgum tilvikum ekki auðvelt að koma vinnuvélum né tækjum á þá staði sem menn vildu gjarnan laga án þess að valda ennþá frekari spjöllum. Við eigum ekki þessi svæði heldur höfum afnot og því má aldrei gleyma.
Thursday 18. March 2010, 20:47
Binni Morgan sagði:
Já mikið rétt Sveppi, mikið rétt 1

Ég er sammála þér Kalli með svona endurcross braut, það er ekkert annað en að setja sig í samband við enduro deildina hjá Vík, og reyna koma af stað vinnuhelgi til að setja svona upp...ég skal mæta og hjálpa til ef svona braut verður sett upp !
Thursday 18. March 2010, 21:25
Jói sagði:
Við þurfum nú aðeins að hugsa þetta betur.
Svona félagsstarf er bara akkurat fólkið sem vinnur þetta og hlutirnir sem því langar að láta gerast.
Þeir sem hafa áhuga á motocross og vilja sjá framgang þar bjóða sig fram við stjórn í sjálboðavinnu.
Þeir sem hafa áhuga á enduro og vilja sjá framgang þar bjóða sig fram við stjórn í sjálboðavinnu.
Þeir sem vilja lægri tryggingar fyriri okkur bjóða sig fram við stjórn til að taka á því máli.
Mér sýnist motocross-hópurninn vera bara duglegastur.
Lausin fyrir þá sem vilja eitthvað, er að gefa sig fram við stjórn og bjóða krafta sína, fara svo af stað og hringja í vini, setja einn í að redda styrkjum, einn til að útskýra okkar sjónarmið við tryggingafélögin, einn í að redda tækjum, einn í að redda verkfærum, einn í að koma með grill, einn í að koma með hamborgara, einn í að koma með bjór, einn að segja í brandara, einn til að gera grín að og svo frv.
Svo bara gerist allt sem ykkur langar.
Þetta virðist allavega virka svona hjá þeim sem einblína á motocross.
Við skulum ekkert vera að kvarta yfir að það sé gert ofmikið af einhverju.
Nokkur ár borgaðiég í Vík og það var ekkert svæði engin keppni og ekkert gert, kom ekki einu sinn út drullumall.
Held meiri segja að árgjaldi hafi verið svipað þá.
Kannski er það meðal annars vegna þess sem Vík er til í dag og margir ykkar uppgvötuðu þetta skemmtilega sport. Hver veit?
Ef að ykkur finnst Vík einblína of mikið á motocross, er þá ekki bara vandamálið að þið eruð ekki þar að einblína meira á enduro.
Alla vega ætla ég ekki að einblína minna á motocross útaf ykkur, kannski einblín ég bara ennþá meira á motocross útaf nöldrinu.
Ef að ég einblíni á að fá 8000fm motocross-hús og redda 100 miljónum í styrk fyrir því, ætli þá komi álíka comment að kvarta yfir því að Vík einblín alltofmikið á hús?
Þá kannski fer ég á fullt í það.

Varðandi þá sem eru ekki í félaginu og nota aðstöðuna.
Já þið getið nýtt ykkur þetta allt án þess að vera í Vík.
Þið getið líka gert meira en það.
Stolist í brautina og komist upp með það.
Fengið frítt kaffi á Litlu kaffistofuni án þess að kaupa nokkuð.
Fundið gleraugu í óskilamunum og þóst eiga þau.
Komið seinustu tíu mínuturnar á vinnudögum, sagt brandara og montað ykkur síðan af að vera svaka sjálfboðaliðar.
Það eru til alskyns trikk fyrir loosera.
Thursday 18. March 2010, 22:47
Jói sagði:
Nákvæmlega Binni, Þú ert örugglega rétti maðurinn til að draga her af fólki með þérí þetta mál.
Thursday 18. March 2010, 22:53
Pétur #35 sagði:
Vá málefnilegar umræður hér um ekki neitt sem skiptir máli ef menn eru óanægðir með slóða í bolöldu þá fara þeir bara eh annað mér persónulega fynst þetta svæði æðislegt og get tekið Kalla út að hjóla og sínt honum hvað svæðið hefur uppá að bjóða:):) Varðandi félagsgjöld þá fyndist mér að það ætti að vera möguleiki að vera í öllum klúbbunum fyrir kanski 25.000 sem myndi skiptast niður eftir stærð klúbbana og þeir gull félagsmenn væru á öðrum taxta en hinir í brautirnar:)
Thursday 18. March 2010, 23:47
Kristján Arnór #400 sagði:
Kalli, ef þú hefur metnað fyrir´slóðamálunum í Bolaöldum, hafðu ´þá endilega samaband kristjangretarsson@hotmail.com
Kv
Kristján "Slóði"
Friday 19. March 2010, 09:23
Nafn

Netfang

Skoðun

Sláðu inn tölustafinn þrír (til að koma í veg fyrir spamm)



Til baka