Monday 29. June 2009, 18:52

Já mótið á Ólafsfirði einkenndist af léttleika og var stemmingin allveg frábær. Það var orðið á meðal þeirra fáu keppenda sem létu sjá sig að þetta væri með þeim skemmtilegri bikarmótum sem þeir höfðu heimsótt. Helgi Reynir bjó til ótrúlega braut úr sandinum og segi ég enn og aftur...þetta ER heimsmeistari í brautar hönnun !. Pallarnir héldu sér, frábær kicker á þeim og beygjurnar allveg geðveikar....ef ekki bara þroskaheftar ?. Ég er ekki hrifin af því að keyra í sandi og hef lítið gert af því, en ég sá sko sannarlega ekki eftir því að hafa tekið þátt.

Maður mótsins var sannarlega Jóikef #177 en kappinn náði öllum holuskotunum og átti góða baráttu við Eyþór #11 öll 3 moto-in, og kom Jói svo sannarleg öllum á óvart með flottum akstri. Aron #66 átti þó fyrstu tvö moto-in en varð svo að dóla í því þriðja þegar kúplingin var að gefa sig, en ég held að 3 hjól hafi áhveðið að fara ekki lengra vegna ónýtra kúplinga. Og hef ég aldrei séð aðrar eins bruna rústir og hjá Árna #100 þegar hann opnaði kúplings lokið :). Annars átti ég gott fyrsta moto og þriðja, en í öðru moto-i fór ég á granirnar þegar ég fór þversum á einum pallinum snemma eftir start, fékk græjuna ofan á mig og hálf vankaðist, en sem betur fer lenti maður í mjúkum sandi og slapp óbrotin.

Eins og ég segji fór mótið fram með prýði, en eitthvað held ég að verðlauna afhendingin hafi farið skorðum í MXopen, þar sem Jóikef var settur í 3 sætið, Aron í annað og Eyþór í það fyrsta. En hann var skráður í MX2 sem hann vann einnig. Annars veit ég ekki hvernig þessi MX open flokkur er eftir hann var enduskýrður ?

En enn og aftur takk kærlega fyrir mig Helgi Reynir og Co sem sáu um þetta mót !!

Jóikef grimmur !!!

Husqvarna 450 hjólið var að gera flott hluti, sló ekki feilpúst í sandinum sem var þungur á köflum.

Eyþór var að keyra fanta vel á 250F hjólinu.

Aron átti fyrstu tvö moto-in skuldlaust.

Fleiri myndir frá Guðný Ág " hér "

Einnig náðust nokkrar á vélina hans Jóa þangað til hún varð batterýslaus....." hér "

En svo á sunnudeginum fékk ég góða heimsókn þegar Eyþór, Reynir og frú kíktu í heimsókn í sveitina til mín, litu á Samgönguminjasafnið hjá pabba gamla og eftir það litum við niður í Morgan Track þar sem Eyþór slefaði yfir jarðveginum. Einnig eignaðist hann nokkra aðdáendur sem hreinlega sleiktu út í annað þegar þeir sáu kappan í Fox peysunni sinni frá Púkanum.com !!

En Eyþór mun trúlega eyða hjá mér helgi á norðulandinu þegar ég verð búin að stækka brautina og gera stóra step up-ið .....hlakka til að hafa kappan hjá mér !

Friday 26. June 2009, 13:24

Auka Road-Race æfing verður haldin á morgun Laugardaginn 27. Júní. Ætlum að byrja að keyra kl 14:00 og því kannski gott að fá einhverja til þess að mæta um 13:30 til þess að hjálpa til við að sópa brautina.

 

 

Miðar seldir í N1 í Hafnarfirði

kr  2000

kr 1000 fyrir AÍH félaga (svo getur fólk skráð sig í félagið á staðnum)

Allir velkomnir og endilega látið orðið berast

 

Thursday 25. June 2009, 16:17

VÍK ætlar að standa fyrir byrjendadegi á laugardaginn á milli kl. 10 og 13.

Litlu hjólin eru velkomin í stóru brautina á laugardaginn

Þá býðst öllum sem ekki hafa keyrt stóru brautina eða treysta sér ekki til að keyra á venjulegum opnunartíma tækifæri til koma og prófa að keyra brautina án truflunar frá þessm vönu keyrurum sem keyra brautina alla daga á ofurhraða, eða að því virðist. Hugmyndin er að  skipta þeim sem mæta í stærri hjól (125+) og minni hjól (65-85cc ) og skipta þeim svo inn í brautina á 15 mínútna fresti þannig að hvor hópur eigi sínar 15 mínútur í einu.

Kl. 10-10.15 væru t.d. minni hjólin í brautinni - 10.15-10.30 væru stærri hjólin inn á og svo framvegis til kl. 13. Einar Sigurðarson o.fl. verða á staðnum og gefa góð ráð og leiðbeiningar um keyrslu í braut fyrir alla sem vilja. Svo má minna á motocrossæfingar VÍK sem hafa verið mjög vel sóttar og reyndar er nánast fullt í yngri hópana, mögulega getum við þurft að bæta við fleiri æfingahópum. Enn eru laus pláss hjá Össa og Aroni fyrir þá sem eru á stærri hjólum (125-250 og stærra).

Brautin verður því lokuð öllum öðrum en byrjendum á laugardagsmorguninn en opnar aftur fyrir alla kl. 13.

Thursday 25. June 2009, 11:52

Sá gamli skellti sér í smá prufu hring í gær til að athuga hendina á sér, er ekki frá því að sá "gamli" lýti bara vel út !

Koma svo, skrá sig á msisport.is og vera með um helgina !!!!!

 

Wednesday 24. June 2009, 21:27

Oakely er með snildar framlag, en þar geturu hannað þín "googles"  !

Hér er mitt framlag og þau sem ég pantaði..

Hannaðu þín eigin Oakley " hér "

Wednesday 24. June 2009, 11:36  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  9 skošanir
Wednesday 24. June 2009, 11:32  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  1 skošun
Wednesday 24. June 2009, 11:31  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  3 skošanir
Monday 22. June 2009, 13:16  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  103 skošanir
Monday 22. June 2009, 01:59  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  13 skošanir
Saturday 20. June 2009, 02:22  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  10 skošanir
Saturday 20. June 2009, 00:22  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  6 skošanir
Wednesday 17. June 2009, 12:45  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  18 skošanir
Tuesday 16. June 2009, 12:05  |  Aron #66 skrifaši  |  10 skošanir
Tuesday 16. June 2009, 11:42  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  7 skošanir
Monday 15. June 2009, 20:29  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  1 skošun
Monday 15. June 2009, 14:17  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  14 skošanir
Monday 15. June 2009, 10:17  |  Homy skrifaši  |  3 skošanir
Friday 12. June 2009, 15:01  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  15 skošanir
Thursday 11. June 2009, 15:50  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  5 skošanir
Thursday 11. June 2009, 11:56  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  3 skošanir
Wednesday 10. June 2009, 21:16  |  Sindri Morgan skrifaši  |  2 skošanir
Wednesday 10. June 2009, 14:43  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  9 skošanir
Wednesday 10. June 2009, 09:53  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  2 skošanir
Tuesday 09. June 2009, 14:26  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  25 skošanir
Tuesday 09. June 2009, 12:03  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  23 skošanir
Tuesday 09. June 2009, 10:27  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  4 skošanir
Sunday 07. June 2009, 00:25  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  23 skošanir
Saturday 06. June 2009, 23:45  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  2 skošanir
Saturday 06. June 2009, 13:34  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  5 skošanir
Friday 05. June 2009, 10:50  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  13 skošanir
Friday 05. June 2009, 09:57  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  12 skošanir
Thursday 04. June 2009, 09:43  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  15 skošanir
Wednesday 03. June 2009, 15:37  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  1 skošun
Wednesday 03. June 2009, 14:28  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  9 skošanir
Wednesday 03. June 2009, 09:58  |  ..::BinnZon::.. skrifaši  |  9 skošanir
Tuesday 02. June 2009, 00:44  |  Aron #66 skrifaši  |  17 skošanir