ad space left ad space right

Blogg » Husqvarna með rafmagns "torfæruhjól"

Prófílmynd
Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, 19 sep. kl. 11:38

Já Husqvarna/BMW eru að fara koma með rafmangs torfæruhjól á markað, ef torfæuhjól má kalla. En eins og flestir vita finnst mér rafmagns torfuhjól ekki heillandi. þetta eru meira kannski í flokki eins og með rafmagns vespunum sem sjást á öllum gangstéttum í Reykjavík. Kraftlaust - ljótt og alls ekki byggt til að þola það sem alvörutorfæruhjól þola í dag.

En jú því er ekki að neita að þetta hjól er virkilega fallega ljótt. Ég meina, flott hönnun og mjös svo nýstárleg eins og BMW er kunnugt að gera.

En aðalatriðið er að með komandi tímum þá verðum við trúlega að sætta okkur við það - að bensín knúin torfæruhjól munu trúlega verða bönnuð með komandi árum vegna mengunar og hverskonar bull, er ekki að segja að það gerist á næsta ári. En trúlega innan 10 ára, þá kæmi mér það ekki á óvart að lög væru komin í einverjum löndum að bannað er að vera á bensínknúnu torfæruhjóli á viðkomndi svæðum eða stígum. Framtíðin er ......jahh ekki björt :(

Pukinn.com hefur því lagt inn pöntun á einu svona E-Go hjóli til að sjá smíðina og prufa fyrir komandi tíma. Og hver veit, kannski þegar ég verð búin að prufa þá mun maður kannski "fýla" það og hætta þessum fordómum - eeeeeeða jafnvel hata komandi tíma enn meira :)

 

ad space right tower top