ad space left ad space right

Blogg » Hin íslenski mekki gefur okkur góð ráð.

Prófílmynd
Brynjar Þór Gunnarsson setti inn, 11 nóv. kl. 09:46

Mekkinn er alltaf að brasa og alltaf að laga. Nú lenti hann í því að gera gat á mótorinn hjá sér líkt og svo margir aðrir. Án þess að eyða formúgu í nýjan varahlut þá gerir hann við hlutina á auðveldan og einfaldan hátt með mögnuðum vörum sem fást nú á 21 öldinni.

Hér sést gatið. Og þar sem þetta er magnesíum blanda er erfitt að sjóða í þetta svo gott sé.

 

Efnin sem mekkin notar í það eru frá Wurth, enda hefur hann mjög góða reynslu af þeim vörum.

 

Hráefnin voru fljótandi málmur, fituhreinsir og grófur sandpappír.

 

Að sjálfsögðu þurfti að taka vélarhlífina af og hreinsa mjög vandlega, rispa vel upp viðgerðarsvæðið með sandpappírnum, hreinsa mjög vel með fituhreinsinum og blása af með þrýstilofti.

 

Fljótandi málmurinn kemur í tveimur túbum, grunnefni og herðir, skammta sér passlegt magn og hræra vel saman.

Bera á viðgerðarsvæðið og passa sig að jafna vel út. Efnið er fljótt að taka sig þannig að ca 10 mín seinna er hægt að setja anna skammta af fljótandi málminum að innan. Mekkinn telur nauðsynlegt að setja efnið báðum megin á viðgerðarsvæðið.

 

Epoxýstautar er gott  að hafa með sér ef þarf að bráðredda í enduro túrum. Þar er á ferð leirkennt efni sem hnoðað er saman og síðan klesst í gatið eða skemmd. Bensín er hægt að nota til fituhreinsunar í neið.

 

Góð kvöldstund hjá mekkanum þar sem restin af kvöldinu var notuð í að strjúka af hjólinu, smyrja keðju og fara yfir link. Hjólið klárt til notkunar um komandi helgi.

 

Vonandi hjálpa þessar línur einhverjum til að redda sér í skúrnum.

Kv

Mekkinn

 

ad space right tower top